Glæpahyski eru þessir Ásgeirssynir... betur þekktir sem múrarabófarnir! Allir þekkja þegar elsti múrbróðirinn var handtekinn af norsku gæslunni vegna þess að hann var að stela síld inní þeirra lögsögu... Það fór þannig að draga þurfti skipið með öllum meðlimum áhafnarinnar til Noregs með öllum þeim óþægindum sem því fylgir og skipstjórinn þurfti að taka á sig sökina!! Ekki lærði næst elsti bróðirinn af reynslu þanns elsta heldur lét nappa sig af norsku gæslunni núna í gær við sama athæfi og eldri múrbróðirinn... þ.e.a.s að stela síld! Spurning hvort það sé enginn að gefa þessum drengjum að éta? Enn og aftur þurfti að draga skip + áhöfn til noregs og allt vegna látalæta Múrbræðranna...
það er alveg á hreinu að ég kem ekki nálægt noregi i bráð!!
Jæja þá er þessari æsispennandi kvikmyndagetraun lokið og sigurvegarinn fundinn... En áður en maður blaðrar því þá ætla ég nú aðeins að ræða aðra hluti. Til dæmis það að mér tókst að klúðra upptalningunni á sigurvegurum núna síðast.. því að sindri freyr hefur unnið 2 keppnir og Nonni tók eina keppni svo það var tækifæri fyrir Nonna að jafna núna... og mikið í húfi enda báðir miklir kvikmyndaspekúlantar og bjórdrykkjumenn! Svo er nú spurning hvort að einhver annar hafi komið sterkur inn og hrifsað til sín sigurinn..
Það tóku 9 aðilar þátt í þetta skiptið sem er að ég held met í þessari keppni hehe.. og ég fékk mörg skemmtileg svör til dæmis var einn sem svaraði Pink panther í stað eaving Las Vegas. Einn svarði Platoon í stað Private Benjamin og reyndar kom svarið Private Ryan þar líka hjá öðrum. The graduate fékk líka nafnið Mrs Robinson og kvikmyndin Dogday afternoon fékk nafnið Gigli. Ólafsson bræðurnir voru báðir jafn sniðugir að finna upp á nafn á kvikmyndina Requiem for a dream en Helgi skírði myndina "The guy who stole my Tv" en Þórir var stuttorður og skírði myndina "Steeling Tv" Einnig átti Þórir afar góða nafngift á myndina Romeo + Juliet þegar hann nefndi myndina My Mother. Besta þýðingin kom afturámóti frá Dagný en það var "Elskan ég minnkaði börnin".
En jæja .. er ekki rétt að ljúka þessu af? Rétt svör eru eftirfarandi:
1. Tango and Cash 2. Honey i shrunk the kids 3. Hudson hawk 4. Airplane 5. Requiem for a dream 6. Dogday afternoon 7. Some like it hot 8. Romeo + Juliet 9. Dr.Strangelove 10. Jaws 11. Analyze that 12. Goodfellas 13. Jerry maguire 14. Private benjamin 15. Leaving las vegas 16. The graduate 17. Seven 18. Backdraft 19. Dead poets society 20. Field of dreams 21. Usual suspects 22. Sliver 23. Tremors 24. Poltergeist 25. King ralph
Þetta var frekar kvikindisleg og erfið kvikmyndagetraun ég viðurkenni það og ætti ég sjálfur í miklu bassli með hana sjálfur... algengustu mistökin var að nefna Analyze This en myndin sem um ræðir er Analyze that. Einnig átti fólk í miklu basli með Requiem for a dream og Tremors stríddi þónokkrum...
Stigin enduðu því þannig: Sindri Freyr fékk 0 mínusstig og er því sigurvegarinn í þetta skiptið og hefur aldeilis tekið forystuna! og á hann því inni hjá mér kippu af bjór!
Stigataflan er svona og er henni raðað upp eftir mínusstigum og ath það að ef fólk er jafnt þá gildir sá sem sendi á undan.
Ég þakka ölllum sem tóku þátt og þeir sem ekki þorðu að taka þátt geta þá bara reynt við næstu.. ég reyni að vera með nýja bara sem fyrst... kannski með einhverju öðru sniði.. sjáum til